Kaffivélar

Svissneski framleiðandinn Jura býður úrval espresso véla fyrir heimili og vinnustaði. Impressa vélarnar laga alla helstu kaffidrykkir nútímans s.s. espresso, cappuccino og caffé latte.
Allar vélarnar í Impressa línunni eru alsjálfvirkar, stutt er á einn hnapp, þá malar vélin kaffið og skilar fullkomnum espresso beint í bollann. Svissnesk gæðasmíð og stílhrein hönnun gerir Impressa að prýði fyrir hvert heimili, vinnustað eða kaffihús.
Allar Impressa vélar hafa stýriborð sem leiða notandann áfram skref fyrir skref, hvort sem er við lögun kaffisins, við flóun eða hreinsun vélarinnar. Impressa vélin er þægileg, einföld og áreiðanleg kaffivél sem gefur espresso kaffi eins og Ítalir vilja hafa það.
Kynntu þér Lavazza kaffið frá Ítalíu, sem við mælum með í allar Impressa kaffivélar.



